Skólanefnd - 5
- Kl. 13:30 - 15:16
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 5
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Ytra mat á grunnskólum - Síðuskóli
Málsnúmer 2014010235Ólöf Andrésdóttir skólastjóri Síðuskóla kynnti helstu niðurstöður af ytra mati á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis á Síðuskóla og umbótaáætlun því tengdu sem þegar er farið að vinna eftir.
Skólanefnd þakkar Ólöfu fyrir kynninguna.
Sumarlokun leikskóla 2015 - athugasemdir
Málsnúmer 2014120030Svar við fyrirspurn í 3. lið fundargerðar viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 12. febrúar 2015.
Varðandi sumarlokanir leikskóla sumarið 2015 er vísað í 2. lið fundargerðar skólanefndar frá 8. desember 2014.
Í langtímaáætlun liggur fyrir samþykkt um að um tveggja vikna sumarlokanir leikskóla verði að ræða. Það gefur svigrúm til um 8-10 vikna tímabils sumarlokana.
Langtímaáætlun er háð fjárhagsáætlun hverju sinni.Skólastefna - endurskoðun
Málsnúmer 2014010001Vinnulag við endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar.
Skólanefnd mun hefja endurskoðun skólastefnu með nokkrum vinnufundum nefndarinnar. Síðan verða aðilar kallaðir að eftir því sem líður á vinnuna.
Ungmennaráð - starfsemi
Málsnúmer 2011030133Anna Guðlaug Gísladóttir umsjónarmaður ungmennaráðs Akureyrar kynnti hlutverk ráðsins og helstu verkefni.
Skólanefnd þakkar Önnu Guðlaugu fyrir góða kynningu á starfsemi ráðsins.
Sparkvellir/upphitun - athugasemdir
Málsnúmer 2015010188Svar við fyrirspurn í 3. lið fundargerðar viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 15. janúar 2015 um upphitun sparkvalla.
Allir sparkvellir Akureyrarbæjar eru upphitaðir allt árið. Ef mikið hefur snjóað og tíðarfar erfitt, hefur snjóbræðslan ekki undan.