Bæjarráð - 3280
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3280
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Petrea Ósk Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Sjávardýragarður á Akureyri
Málsnúmer 2011070052Hreiðar Þór Valtýsson fiskifræðingur og Jóhann Einar Jónsson arkitekt mættu á fund bæjarráðs og kynntu hugmyndina um að á Akureyri verði reistur sjávardýragarður á heimmælikvarða með áherslu á lifríki Norðurhafa.

Bæjarráð þakkar þeim Hreiðari Þór og Jóhanni fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012 - fjárhagsáætlunarferli
Málsnúmer 2011070038Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 14. júlí sl. en þá lagði Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli 2011 fyrir árið 2012.\nFormaður bæjarráðs lagði fram breytingu á fjárhagsáætlunarferlinu sem felur í sér að starfsáætlanir nefnda verði aðeins lagðar fram til kynningar í bæjarstjórn en ekki til samþykktar.

Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsáætlunarferli með þeim breytingum sem lagðar voru fram á fundinum.

Hermann Jón Tómasson S-lista og Ólafur Jónsson D-lista greiða atkvæði á móti tillögunni með þessum breytingum og óska bókað ásamt Sigurði Guðmundssyni A-lista:

Við erum andvígir þessari breytingu þar sem hún skerðir rétt bæjarfulltrúa til að taka afstöðu til starfsáætlana einstakra nefnda.

Fulltrúar L-lista ítreka að nefndir vinna samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun og að starfsáætlanir taka mið af henni og telja að ekki sé verið að ganga á rétt bæjarfulltrúa.

Samgönguáætlun 2011-2014 - forgangsverkefni á fjögurra ára áætlun
Málsnúmer 2011050084Erindi dags. 13. júlí 2011 frá Pétri Þór Jónassyni, framkvæmdastjóra Eyþings, varðandi forgangsverkefni á fjögurra ára samgönguáætlun. Óskað er eftir að sveitarstjórn sendi inn tillögu fyrir 25. ágúst nk. um 3 - 5 verkefni sem hún telur að setja eigi í forgang á næstu samgönguáætlun.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

Námsstyrkjasjóður embættismanna
Málsnúmer 2010120025Tekið fyrir að nýju áður á dagskrá bæjarráðs 27. janúar sl. en þá fól bæjarráð bæjarstjóra og kjarasamninganefnd áframhaldandi vinnslu málsins.\nHalla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að taka aftur upp greiðslur í námsstyrkjasjóð embættismanna frá og með 1. ágúst nk., gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 3,2 milljónir króna. Kostnaði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Sigurður Guðmundsson A-lista gagnrýnir harðlega afgreiðsluna.

Önnur mál
Málsnúmer 2011010003Geir Kristinn Aðalsteinsson greindi frá erindi frá gömlum togarasjómönnum um að komið verði upp minnisvarða um togaraútgerð í bænum.\nBæjarráð felur Geir að vinna áfram að málinu.