Umhverfisnefnd - 95
19.08.2014
Hlusta
- Kl. 14:00 - 15:30
- Kaffistofa framkvæmdadeild
- Fundur nr. 95
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Kristinn Frímann Árnason
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- bæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonfundarritari
Kynning á ábyrgðarmörkum og siðareglum kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 2014070048Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn og kynnti reglur um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa.
<DIV><DIV><DIV>Umhverfisnefnd þakkar Ingu Þöll fyrir kynninguna.</DIV></DIV></DIV>
Staðardagskrá 21 - endurskoðun 2012
Málsnúmer 2011050056Forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson, fór yfir vinnu við endurskoðun Staðardagskrár 21 - umhverfisstefnu.
Umhverfisnefnd samþykkir að setja á fót starfshóp um endurskoðun umhverfisstefnu fyrir Akureyrarkaupstað sem í sitji Dagbjört Elín Pálsdóttir, Kristján Ingimar Ragnarsson, Áshildur Hlín Valtýsdóttir og starfsmenn.Samgönguvika 2014
Málsnúmer 2014080025Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson, fóru yfir drög að dagskrá samgönguviku sem haldin verður 16.- 22. september nk.
<DIV>Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.</DIV>