Umhverfis- og mannvirkjaráð - 166
- Kl. 08:15 - 10:24
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 166
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Leirustígur - hönnun og framkvæmdir
Málsnúmer 2022021084Lagt fram minnisblað dagsett 9. ágúst 2024 varðandi opnun tilboða í frágang á Leirustíg. Eitt tilboð barst frá Finni ehf.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis-og mannvirkjaráð samþykkir tilboð frá Finni ehf. upp á kr. 27.732.200.
Brú yfir Glerá - Skarðshlíð-Glerártorg
Málsnúmer 2022120693Farið yfir stöðu útboðs á byggingu brúar yfir Glerá. Engin tilboð bárust, næstu skref rædd.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar og Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.Grímsey - fasteignir
Málsnúmer 2024010684Lagt fram tilboð í fasteign og farið yfir stöðu á mögulegri sölu annarra fasteigna í Grímsey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar tilboði í Hafnargötu 15 í Grímsey til bæjarráðs.
Bílastæði við Glerárskóla, Klappir og Árholt
Málsnúmer 2023120628Farið yfir betrumbætur á umferðaröryggi við Glerárskóla. Meðal annars með endurskipulagningu núverandi bílastæða þannig að nýting þeirra verði í samræmi við upphaflega hönnun. Þar að auki verði settar lokanir á göngustíga til að koma í veg fyrir akstur um þá.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Rekstur UMSA 2024
Málsnúmer 2024080516Lagt fram minnisblað til upplýsingar vegna reksturs UMSA fyrstu 6 mánuði ársins 2024.