Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1001
- Kl. 13:00 - 13:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 1001
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
Laufásgata 4 - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2025011221Erindi dagsett 21. janúar 2025 þar sem Hafnasamlag Norðurlands sækir um stöðuleyfi fyrir allt að 15 smáhýsi á rútustæði við Oddeyrartanga.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Höfðahlíð 16 - Glerárlaug - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024101031Erindi dagsett 25. október 2024 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum utanhúss á sundlaugarsvæði við hús nr. 16 við Höfðahlíð. Innkomin uppfærð gögn 22. janúar 2025 eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Sjafnargata 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024121020Erindi dagsett 12. desember 2024 þar sem Gunnar Örn Sigurðsson f.h. Haga hf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir þjónustustöð með verslun, veitingum og vöruhúsi ásamt útisvæði á lóð nr. 2 við Sjafnargötu. Innkomin uppfærð gögn 22. janúar 2025 eftir Gunnar Örn Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.