Stjórn Akureyrarstofu - 301
- Kl. 14:00 - 15:32
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 301
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni
Málsnúmer 2020020492Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni lagður fram til kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að uppfæra samninginn miðað við umræður á fundinum og óska eftir frekari gögnum frá Gilfélaginu.
Sigurhæðir - leiga húsnæðis
Málsnúmer 2019090404Deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir stöðu máls vegna leigu á Sigurhæðum.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2020060055Lagt fram til kynningar bréf dagsett 29. maí 2020 frá héraðsskjalavörðum í Kópavogi, á Selfossi, í Mosfellsbæ, Höfn í Hornafirði og Búðardal varðandi stöðu Héraðsskjalasafnsins á Akureyri vegna skipulagsbreytinga.
Hátíðahöld á vegum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2020060901Umræða um fyrirkomulag hátíðahalda á vegum Akureyrarbæjar sérstaklega í ljósi COVID-19.
Deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir fyrirkomulagi hátíða sumarið 2020.Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju með það hvernig til tókst með 17. júní hátíðahöldin og þakkar starfsfólki Akureyrarstofu fyrir gott skipulag.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021
Málsnúmer 2020060900Lögð fram til kynningar gögn er varða vinnu við starfs- og fjárhagsáætlunargerð stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2021.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2020
Málsnúmer 2020040153Rekstraryfirlit janúar - apríl 2020 lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir 2020
Málsnúmer 2020040527Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá því 5., 8. og 13. maí 2020 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020
Málsnúmer 2020020650Fundargerðir SSNE nr. 8., 9. og 10 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Fundargerðir AFE
Málsnúmer 2019040049Fundargerðir stjórnar AFE nr. 243, 244 og 245 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Fundargerðir safnráðs Listasafnsins á Akureyri
Málsnúmer 2002040036Fundargerð safnráðs Listasafnsins á Akureyri nr. 24 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl