Velferðarráð - 1323
- Kl. 14:00 - 16:02
- Fjarfundur
- Fundur nr. 1323
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2020
Málsnúmer 2020040595Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrar janúar - júní 2020.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA og Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024
Málsnúmer 2020030454Fjárhagsáætlun 2021 - gögn um vinnuferli áætlunargerðar kynnt.
Búsetusvið - velferðartækni
Málsnúmer 2018100384Ivalu Birna Falck-Petersen háskólanemi ásamt Þórdísi Rósu Sigurðardóttur forstöðumanni stoðsviðs kynntu vinnu sem þær unnu á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst um velferðartækni. Kynnt voru drög að upplýsingariti/bæklingi um velferðartækni fyrir eldri borgara ásamt stöðunni á myndsamtölum.
Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2020050662Undirbúningur að stjórnkerfisbreytingum í velferðarþjónustu ræddur.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagsaðstoð 2020
Málsnúmer 2020040596Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu sjö mánuði ársins.
Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarbæjar um þjónustu Öldrunarheimila Akureyrar
Málsnúmer 2020040564Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA reifaði niðurstöður og framkvæmd viðræðna Akureyrarbæjar við Sjúkratryggingar Íslands um að HSN taki yfir rekstur ÖA frá og með næstkomandi áramótum.
Fylgiskjöl