Ungmennaráð - 27
04.05.2022
Hlusta
- Kl. 16:00 - 18:30
- Íþróttahöllin
- Fundur nr. 27
Nefndarmenn
- Alexía Lind Ársælsdóttir
- Anton Bjarni Bjarkason
- Ásta Sóley Hauksdóttir
- Bjarni Hólmgrímsson
- Elva Sól Káradóttir
- Fríða Björg Tómasdóttir
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- Stormur Karlsson
- Telma Ósk Þórhallsdóttir
Starfsmenn
- Sigríður Ásta Hauksdóttirverkefnastjóri
- Hafsteinn Þórðarsonfundarritari
Þór Reykjalín Jóhannesson og Freyja Dögg Ágústudóttir boðuðu forföll.
Kynning fyrir ungmennaráð
Málsnúmer 2021041035Frambjóðendur til sveitarstjórnakosninga á Akureyri 14. maí 2022 komu á fundinn, svöruðu spurningum og kynntu sig. Öll framboð mættu nema frá K-lista. Frambjóðendur fengu einnig fræðslu frá ungmennaráði um merkingarbæra þátttöku barna, barnvænt sveitarfélag og ungmennaráð.
Verkefni framundan
Málsnúmer 2020120160Tveir fulltrúar ungmennaráðs munu dæma á Fiðringi í Hofi 5. maí nk.
Tveir fulltrúar ungmennaráðs fara með verkefnisstjóra barnvæns sveitarfélags og starfsmanni ungmennaráðs til Úteyjar í Noregi 30. maí - 4. júní nk. á tengslaviðburð Erasmus.
Fyrirhugaður er fundur ungmennaráðs með Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra 10. maí nk.Barnvænt sveitarfélag - 8. skref - stýrihópur
Málsnúmer 2022030625Ungmennaráð frestaði ákvörðun um skipan fjögurra fulltrúa í stýrihóps barnsvæns sveitarfélags.