Stjórn Akureyrarstofu - 145
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 145
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Hildur Friðriksdóttir
- Jóhann Jónsson
- Helgi Vilberg Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Fjárhagsáætlun 2014 - Akureyrarstofa
Málsnúmer 2013080216Farið yfir ramma fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu og drög að áætlun fyrir árið 2014. Vinnu við fjárhagsáætlun verður haldið fram á næsta fundi.

Hátíðahöld á 17. júní og Akureyrarvöku - samþykkt
Málsnúmer 2013080225Farið yfir drög að samþykkt fyrir hátíðahöldin á 17. júní og Akureyrarvöku. Samþykktin samanstendur að hluta af eldri samþykkt fyrir hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn og við hana hefur verið bætt kafla um Akureyrarvöku.

Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir áliti framkvæmdaráðs á samþykktinni áður en til endanlegrar afgreiðslu kemur.

Grímsey - heimskautsbaugurinn
Málsnúmer 2012040043Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 29. ágúst 2013 frá verkefnisstjóra ferðamála á Akureyrarstofu um framhald og mögulegan kostnað vegna samkeppni um nýtt tákn fyrir heimskautsbauginn í Grímsey.

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Akureyri - samstarfssamningur
Málsnúmer 2013020239Fyrr í dag var undirritaður þriggja ára samstarfssamningur milli Akureyrarstofu, Háskólans á Akureyri, Stefnu Hugbúnaðarhúss og Tækifæris hf um framkvæmd Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu staðfestir samninginn og fagnar því að framtíð þessa mikilvæga viðburðar er nú tryggð.