Bæjarráð - 3267
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3267
Nefndarmenn
- Geir Kristinn Aðalsteinssonvaraformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Ólafur Jónsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hermann Jón Tómassonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Almannaheillanefnd
Málsnúmer 2008100088Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 18. mars 2011.

Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2011
Málsnúmer 2011030134Erindi dags. 9. mars 2011 frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 25. mars 2011 kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. Vakin er athygli á því að rétt til að sækja aðalfund eiga allir sveitarstjórnarmenn.

Bæjarstjóri fer með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra - ársreikningur 2010
Málsnúmer 2010090127Lagður fram til kynningar ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra fyrir árið 2010. Einnig lögð fram til kynningar fundargerð 133. fundar heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dags. 9. mars 2011.

Loftslagsráðstefna á Akureyri - 2011
Málsnúmer 20110200042. liður í fundargerð umhverfisnefndar dags. 8. mars 2011:\nUmræður um fyrirhugaða loftslagsráðstefnu vinabæja Akureyrar á Norðurlöndunum sem fyrirhugað er að halda á Akureyri.\nUmhverfisnefnd leggur til að loftslagsráðstefna vinabæja verði haldin haustið 2011. \nUmhverfisnefnd vísar málinu til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir framlag allt að kr. 1.200.000 til ráðstefnuhaldsins. Kostnaði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Héraðsnefnd Eyjafjarðar - framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð
Málsnúmer 2007100109Erindi dags. 3. mars 2011 frá Sigurði Val Ásbjarnasyni bæjarstjóra Fjallabyggðar varðandi samkomulag um stofnun og byggingu framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að óska eftir viðræðum um endurskoðun samkomulagsins á grundvelli breyttra forsendna.

Önnur mál
Málsnúmer 2011010003a) Ólafur Jónsson D-lista óskaði eftir því að bæjarstjóri kallaði eftir upplýsingum frá iðnaðarráðuneyti um stöðu samninga um uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Húsavík í ljósi ummæla iðnaðarráðherra í fjölmiðlum síðustu daga um jákvæðar horfur í málinu.\n\nb) Sigurður Guðmundsson A-lista gerði fyrirspurn varðandi aðkomu starfsmanna Akureyrarbæjar að hreinsun og eftirliti við grenndargáma, þar sem það er ekki innan samnings Akureyrarbæjar og Gámaþjónustu Norðurlands ehf.\n