Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 559
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 559
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill skipulagsstjóra
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Strandgata 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum inni
Málsnúmer 2015100056Erindi dagsett 9. október 2015 þar sem Sólveig Berg Emilsdóttir f.h. Sjóvá, kt. 650909-1270, sækir um breytingar innanhúss í húsi nr. 3 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sólveigu Berg Emilsdóttur.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Jaðar - Golfklúbbur Akureyrar - Klappir - æfinga- og geymsluhús
Málsnúmer 2015070091Erindi dagsett 9. október 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 580169-7169, sækir um breytingar á staðsetningu hússins frá áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Eyrarlandsvegur 14 - fyrirspurn um breytingar innanhúss
Málsnúmer 2015100083Erindi dagsett 13. okóber 2015 þar sem Hólmgeir Þorsteinsson spyrst fyrir um breytingar innanhúss í húsi nr. 14 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi er teikning.
Staðgengill skipulagsstjóra tekur jákvætt í erindið. Sækja þarf um byggingarleyfi með aðaluppdráttum.
Óseyri 16 - breyting inni
Málsnúmer BN050962Erindi dagsett 21. júlí 2015 þar sem Orri Árnason f.h. B2 fasteigna ehf., kt. 561214-1230, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi nr. 16 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Orra Árnason. Innkomnar teikningar 15. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Miðhúsabraut 1 - Skautahöll - afturköllun á byggingarleyfi
Málsnúmer 2015060060Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Guðríður Friðriksdóttir f.h. Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, óskar eftir að falla frá samþykkt á byggingaráformum fyrir breytingum á húsi nr. 1 við Miðhúsabraut, sem samþykkt var 25. september 2015. Jafnframt er óskað eftir niðurfellingu á álögðum gjöldum.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið. Gatnagerðargjöld verða felld niður en ekki er hægt að verða við niðurfellingu á byggingargjaldi og gjöldum vegna endurskoðunar aðaluppdrátta.
Þingvallastræti - Leikskólinn Pálmholt - umsókn um breytingar innanhúss
Málsnúmer 2013050125Erindi dagsett 12. september 2015 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Fasteinga Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar innanhúss á Leikskólanum Pálmholti við Þingvallastræti 50. Meðfylgjandi er teikning eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Borgargil 1 - umsókn um breytta skráningu
Málsnúmer 2015100087Erindi dagsett 14. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytta skráningu á rýmisnúmerum og eignum í húsi nr. 1 við Borgargil. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Dalsbraut Lundarskóli Lundarsel - umsókn um kennslustofur
Málsnúmer 2012060170Erindi dagsett 25. október 2013 þar sem Óskar Gísli Sveinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um leyfi fyrir tvær færanlegar kennslustofur og tengibyggingu á milli til afnota fyrir Leikskólann að Lundarseli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason og skriflegt samkomulag frá skóladeild um staðsetningu lausra kennslustofa á lóð Lundarskóla milli Lundarskóla og Lundarsels. Innkomnar nýjar teikningar 12. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Ráðhústorg 5 - umsókn um breytingar innanhúss
Málsnúmer 2015060152Erindi dagsett 16. júní 2015 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. R353 ehf., kt. 510412-0360, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 5 við Ráðhústorg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar teikningar 4. ágúst 2015. Innkomin hljóðskýrsla frá Eflu dagsett í ágúst 2015. Innkomin teikning 14. september 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Fiskitangi 4 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2015020040Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa, kt. 500209-0620, sækir um byggingarleyfi fyrir millilofti, verkstjórarými og kælirými í eldri byggingu í húsi nr. 4 við Fiskitanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 14. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Strandgata lnr. 149566 - Oddeyrarskáli - frystiklefi og aksturshurð
Málsnúmer 2015090110Erindi dagsett 21. september 2015 þar sem Garðar Halldórsson f.h. Eimskip Ísland ehf., kt. 421104-3520, sækir um leyfi til að innrétta frystiklefa og setja aksturshurð á austurgafl á Strandgötu lnr. 149566/ Oddeyrarskála. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Garðar Halldórsson. Innkomnar teikningar 13. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Byggðavegur 114 A - umsókn um breytta notkun
Málsnúmer 2015100094Erindi dagsett 16. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Auðuns Þorsteinssonar sækir um leyfi fyrir breyttri notkun, úr verslun í hársnyrtistofu, í húsi nr. 114 A við Byggðaveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.