Félagsmálaráð - 1174
- Kl. 14:00 - 17:00
- Hlíð - samkomusalur
- Fundur nr. 1174
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Valdís Anna Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Margrét Alfreðsdóttirfundarritari
Áfrýjun vegna forgangs í leiguhúsnæði 2013
Málsnúmer 2013100212Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun vegna forgangs í leiguhúsnæði bæjarins.

Áfrýjanir vegna forgangs í leiguhúsnæði bæjarins eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Húsaleigubætur 2013 - áfrýjun
Málsnúmer 2013110078Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun vegna húsaleigubóta.

Áfrýjun vegna húsaleigubóta er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Langtímaáætlun - fjölskyldudeild
Málsnúmer 2013010263Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri lagði fram langtímaáætlun fjölskyldudeildar.

Félagsmálaráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

10 ára áætlun HAK 2013-2022
Málsnúmer 2013110067Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri HAK lagði fram til kynningar 10 ára áætlun HAK.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Langtímaáætlun - búsetudeild
Málsnúmer 2013010300Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram drög að langtímaáætlun deildarinnar til kynningar og umræðu.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Félagsstofnun stúdenta - leiga á íbúðum
Málsnúmer 2010060122Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti hugmyndir um áframhaldandi leigu á íbúðum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri. Akureyrarbær leigir nú nokkrar íbúðir af Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) og endurleigir til fólks sem þarf félagslegt húsnæði. Í nokkrum þeirra er veitt allt að sólarhringsþjónusta til íbúa sem þar búa. Samningurinn við FÉSTA rennur út 1. janúar 2016 og er mikilvægt að tímanlega liggi fyrir hvort um áframhaldandi leigu verði að ræða eða hvort finna þurfi viðkomandi einstaklingum nýtt húsnæði.

Félagsmálaráð óskar eftir að húsnæðisdeild leiti eftir samningum við stjórn FÉSTA um framlengingu á leigusamningum, vegna íbúða 101, 102, 103, 104, 105, 303 og 305, frá 1. janúar 2016 - 31. desember 2020.

Rekstrarfyrirkomulag hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofa hjá Öldrunarheimilum Akureyrar og Þjónustumiðstöðvum í Víðilundi og Bugðusíðu
Málsnúmer 2013090049Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður þjónustumiðstöðva í Víðilundi og Bugðusíðu lögðu fram til kynningar fundargerð frá opnun útboða vegna hár- og fótsnyrtiþjónustu. Jafnframt var lagður fram undirskiftarlisti með nöfnum 57 íbúa í Víðilundi 20 og 24 sem vilja hafa hárgreiðslustofuna í Þjónustumiðstöðinni Víðilundi áfram.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna. Varðandi undirskriftarlistann skal tekið fram að þar sem þörf er á húsnæðinu undir starfsemi dagþjónustu mun fyrri ákvörðun standa.

Gæðahandbók ÖA
Málsnúmer 2013110084Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynnti vinnuna við gæðahandbók ÖA og stöðu þess verkefnis.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA skýrðu frá helstu niðurstöðum úr starfsmannakönnunum frá því í mars og í júní á þessu ári. Einnig var kynnt staða Eden verkefnisins.

Félagsmálaráð þakkar upplýsingarnar.

ÖA - velferð og tækni, velferðartækni
Málsnúmer 2013010215Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lýsti í stuttu máli stöðu mála á heimilinu. Farið var í stutta skoðunarferð um húsakynni samhliða fundi félagsmálaráðs á ÖA.

Félagsmálaráð þakkar upplýsingarnar.