Stjórn Akureyrarstofu - 246
- Kl. 16:15 - 18:00
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 246
Nefndarmenn
- Sigfús Arnar Karlssonvaraformaður
- Sædís Gunnarsdóttir
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Íslensku vetrarleikarnir 2018 - styrkumsókn
Málsnúmer 2018020054Tekin fyrir beiðni Viðburðastofu Norðurlands um styrk vegna Íslensku vetrarleikanna 2018 sem haldnir verða 23.- 25. mars nk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 700.000 til verkefnisins.
Greiðslur til listamanna - verklagsreglur Listasafnsins
Málsnúmer 2018010332Málið var tekið fyrir á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 30. janúar sl. og var þá óskað eftir frekari upplýsingum sem nú liggja fyrir.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrir sitt leyti drög að verklagsreglum um verkefnið "Greiðum listamönnum". Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 er gert ráð fyrir 1,5 m.kr. viðbótarfjárveitingu vegna verkefnisins og byggir hún á því að fjárheimildir sem á vantar til að fjármagna það að fullu séu þegar fyrir í rekstri safnsins, en heildarkostnaður er áætlaður um 4,5 m.kr. Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að kostnaðurinn verði sýnilegur í bókum safnsins.
Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál - endurnýjun 2018
Málsnúmer 2017050182Lögð fram drög að samningi við ríkið.
Deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir stöðu mála í samningaviðræðum.Rætt um stöðu samningaviðræðnanna, markmið og fjárframlög.
Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að samningagerðinni verið lokið sem fyrst.