Stjórn Akureyrarstofu - 190
11.06.2015
Hlusta
- Kl. 16:15 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 190
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Guðmundur Magni Ásgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Listasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2015060091Hlynur Hallsson forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri kom á fundinn og greindi frá rekstri safnsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hlyni fyrir komuna.
Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Gerð samnings um útleigu á Laxdalshúsi.
Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu falið að ganga frá samningnum.
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Greint frá stöðu mála í vinnslu safnastefnu Akureyrar.
Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu falið að semja við nýja aðila um ódýrari og betri geymslu fyrir Náttúrugripasafnið.
Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2015-2018
Málsnúmer 2015030239Unnið að starfsáætlun stjórnar Akureyararstofu.