Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 668
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 668
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonbyggingarfulltrúi
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Geirþrúðarhagi 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018020274Erindi dagsett 14. febrúar 2018 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf., kt. 680303-3630, sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 3 við Geirþrúðarhaga fyrir 5 íbúða raðhúsi á einni hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 1. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Furuvellir 7 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014100049Erindi dagsett 22. febrúar 2018 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd CFH ehf., kt. 450710-0160, og BH2 ehf., kt. 441011-0240, sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af breytingum á húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2018020444Erindi dagsett 23. febrúar 2018 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Viðburðir - götu- og torgsala - 2018
Málsnúmer 2017120017Erindi dagsett 15. nóvember 2017 þar sem Khattab Al Mohammed sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir matsöluvagn í Hafnarstræti samkvæmt meðfylgjandi mynd.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um stöðuleyfi þegar nánari útfærsla á söluvagni og rekstrarleyfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra liggur fyrir.