Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 989
- Kl. 13:00 - 13:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 989
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
Hlíðarfjallsvegur - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2024030563Erindi dagsett 11. mars 2024 þar sem Terra umhverfisþjónusta hf. tilkynnir um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi. Framkvæmdirnar fela í sér breytingar á innvegg við umhleðsluhús á stöðinni við Hlíðarfjallsveg. Innkomin gögn eftir Eflu verkfræðistofu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Aðalstræti 13 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024100467Erindi dagsett 13. október 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Stefáns Þórs Gestssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bílgeymslu á lóð nr. 13 við Aðalstræti. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Þursaholt 5, 7 og 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022060362Erindi dagsett 7. júní 2022 þar sem SS Byggir ehf. sækir breytingar á áður samþykktum teikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Þursaholt. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 15. október 2024 eftir Ásdísi Helgu Ágústsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021041271Erindi dagsett 16. október 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.