Fræðsluráð - 11
- Kl. 13:30 - 15:45
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 11
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Rósa Njálsdóttir
Starfsmenn
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017080125Sigríður Ingadóttir frá Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri kom á fundinn og leiddi vinnu og umræður um framtíðarsýn í skólamálum Akureyrarbæjar. Verkefnið er hluti af endurskoðun skólastefnu bæjarins og þeirri vinnu sem nú þegar hefur verið innt af hendi.
Ráðning skólastjóra Oddeyrarskóla
Málsnúmer 2019050386Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir ráðningu skólastjóra Oddeyrarskóla.
Þrjár umsóknir bárust um starfið.
Að höfðu samráði við fræðsluráð var Anna Bergrós Arnarsdóttir ráðin skólastjóri Oddeyrarskóla frá 1. ágúst 2019.
Útboð á ritföngum og námsgögnum
Málsnúmer 2018120119Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir niðurstöðu sameiginlegs örútboðs Ríkiskaupa vegna gjaldfrjálsra námsgagna. Tíu önnur sveitarfélög tóku þátt í útboðinu. Eitt tilboð barst frá Pennanum og var hlutur grunnskólanna á Akureyri kr. 8.735.065.
Málið lagt fram til kynningar.Skólavogin 2018
Málsnúmer 2018030274Karl Frímannsson sviðsstjóri lagði fram til kynningar niðurstöður úr nemendahluta Skólavogarinnar fyrir skólaárið 2018-2019.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram til kynningar minnisblað um stöðu upplýsingatækni í leik- og grunnskólum. Tillaga að skiptingu á sérstöku framlagi til eflingar upplýsingatækni lögð fram.
Fræðsluráð staðfestir framlagða tillögu að skiptingu fjármagns til eflingar upplýsingartækni.
Fylgiskjöl
Rekstur fræðslumála 2019
Málsnúmer 2019030196Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu fjóra mánuði ársins 2019.
Fylgiskjöl