Stjórn Akureyrarstofu - 319
- Kl. 14:00 - 15:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 319
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðforstöðumaður Akureyrarstofu
Skipan fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn MAk
Málsnúmer 2018100235Samkvæmt erindisbréfi stjórnar Akureyrarstofu skal stjórnin skipa fulltrúa í stjórn MAk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Evu Hrund Einarsdóttur sem fulltrúa í stjórn MAk.
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Lagðar fram til kynningar athugasemdir sem fram hafa komið við safnastefnu Akureyrarbæjar.
Forstöðumanni Akureyrarstofu er falið að vinna úr þeim athugasemdum sem bárust.
Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál - endurnýjun 2021
Málsnúmer 2019120027Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál lagður fram til kynningar.
Svigrúm til verkefna menningarsamnings eykst um 25 m.kr. á milli ára.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að 2,3 m.kr. fari árlega til Listasafnsins til skráningar listaverka í gagnagrunn. Áætlað er að 22,7 m.kr. fari til annarra verkefna samningsins.
Jafnframt óskar stjórn Akureyrarstofu eftir því við bæjarráð að veittur verði viðauki við fjárhagsáætlun að upphæð 15 m.kr.
Fylgiskjöl
Sigurhæðir - leiga húsnæðis
Málsnúmer 2019090404Lagður fram til samþykktar samningur við Flóru menningarhús ehf. um leigu á Sigurhæðum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.
Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Lagðar fram til kynningar þær umsóknir sem bárust um leigu á Laxdalshúsi.
Stjórn Akureyrarstofu felur Þórgný Dýrfjörð forstöðumanni Akureyrarstofu, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur og Finni Dúa Sigurðssyni að fara yfir umsóknirnar og koma með tillögu á næsta fundi stjórnar.
Ein með öllu 2021 - samstarfssamningur
Málsnúmer 2021051203Erindi dagsett 20. maí 2021 frá Davíð Rúnari Gunnarssyni f.h. Viðburðastofu Norðurlands þar sem óskað er eftir stuðningi við hátíðina Ein með öllu 2021 og samstarfssamningi til næstu þriggja ára.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að ganga til samninga við Viðburðastofu Norðurlands um framkvæmd Einnar með öllu 2021.
Karl Liljendal Hólmgeirsson vék af fundi kl. 15:45
Fundargerðir safnráðs Listasafnsins á Akureyri
Málsnúmer 2002040036Fundargerð safnráðs Listasafnsins nr. 27 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir
Málsnúmer 2020040527Fundargerðir MN frá 9. mars, 13. apríl og 4. maí 2021 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Iðnaðarsafnið á Akureyri - beiðni um fjárstuðning.
Málsnúmer 2020110905Beiðni um fjárstuðning við rekstur Iðnaðarsafnsins á árinu 2021.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að veittur verði viðauki við fjárhagsáætlun 2021 að upphæð 2.000.000 kr.