Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 738
- Kl. 10:00 - 10:40
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 738
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Glerárskóli við Höfðahlíð - umsókn um byggingarleyfi - breytingar á íþróttahúsi
Málsnúmer 2019040329Erindi móttekið 29. ágúst 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytingar á íþróttahúsi Glerárskóla við Höfðahlíð. Fyrirhugað er að bæta aðstöðu hreyfihamlaðra og fleira. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kringlumýri 11 - afturköllun á byggingaráformum
Málsnúmer 2019050129Erindi dagsett 30. ágúst 2019 þar sem Erla Björnsdóttir fyrir hönd Magnúsar Snorra Magnússonar óskar eftir að falla frá samþykktum byggingaráformum fyrir viðbyggingu við hús nr. 11 við Kringlumýri.
Samþykkt.
Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings
Málsnúmer 2019080391Erindi dagsett 21. ágúst 2019 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 531083-0759, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi til flutnings, sem byggður yrði á svæði 3, við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 4. september 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Strandgata 31 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi
Málsnúmer 2019080525Erindi dagsett 28. ágúst 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Vesturkants ehf., kt. 541008-0630, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 31 við Strandgötu. Fyrirhugað er að breyta skrifstofum í geymslur og fjölga flóttaleiðum. Meðfylgjandi eru samþykki eldvarnaeftirlits, vinnueftirlits og teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Byggðavegur 114A - umsókn um byggingarleyfi til að breyta eigninni í tvö gistirými
Málsnúmer 2019090080Erindi dagsett 4. september 2019 þar sem Arnhildur Pálmadóttir fyrir hönd Auðuns Þorsteinssonar sækir um byggingarleyfi til að breyta húsi nr. 114A við Byggðaveg í tvö gistirými með sérinngangi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Arnhildi Pálmadóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Surtlugata 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019080017Erindi dagsett 1. ágúst 2019 þar sem Ragnar Fr. Guðmundsson fyrir hönd Jakobs R. Jónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir hesthúsi á lóð nr. 2 við Surtlugötu. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 29. ágúst 2019.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.