Stjórn Hlíðarfjalls - 13
- Kl. 13:00 - 14:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonvaramaður
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Brynjar Helgi Ásgeirssonforstöðumaður Hlíðarfjalls
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður
Hlíðarfjall - framtíðarstarfsemi og rekstur
Málsnúmer 2020061017Farið yfir útboðsgögn í tengslum við fyrirhugað útboð á rekstri Hlíðarfjalls.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að gengið verði til samninga við Ríkiskaup um utanumhald á útboði.
Samningur um veitingarekstur í Hlíðarfjalli
Málsnúmer 2021040162Tölvupóstur dagsettur 31. mars 2021 frá Gauta Reynissyni f.h. AnnAssist ehf. þar sem óskað er eftir því að samningi vegna veitingareksturs í Hlíðarfjalli verði rift þar sem, að mati bréfritara, forsendur fyrir samningi séu brostnar þar sem takmarkanir á vínveitingaleyfi frá sýslumanni séu með þeim hætti að rekstrarforsendur sem lagt var upp með gangi ekki upp.
Halla Björk Reynisdóttir bar upp vanhæfi í málinu og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.Stjórn Hlíðarfjalls felur Kristni J. Reimarssyni sviðsstjóra, Brynjari Helga Ásgeirssyni forstöðumanni Hlíðarfjalls og Andra Teitssyni að funda með fulltrúum AnnAssist ehf.