Umhverfisnefnd - 100
20.01.2015
Hlusta
- Kl. 14:00 - 15:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 100
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Kristinn Frímann Árnason
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra - endurskoðun 2015
Málsnúmer 2015010195Umræður um samþykktina. Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi mætti á fund framkvæmdaráðs undir þessum lið.
Umhverfisnefnd beinir því til Framkvæmdaráðs að tryggt verði að á hverju ári verði fjármagni veitt til að hægt sé að framfylgja samþykktinni um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 463/2002 við að halda lóðum og lendum bæjarins snyrtilegum.
Samgöngustefna
Málsnúmer 2015010196Umræður um gerð samgöngustefnu.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að Rúna Ásmundsdóttir umferðaverkfræðingur mæti á næsta fund nefndarinnar til umræðna um samgöngustefnu.
Úrgangsmál - starfshópur
Málsnúmer 2014110224Forstöðumaður umhverfismála kynnti fundargerðir starfshóps um úrgangsmál.