Íþróttaráð - 107
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 107
Nefndarmenn
- Nói Björnssonformaður
- Þorvaldur Sigurðsson
- Þóroddur Hjaltalín
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Dýrleif Skjóldaláheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingsson
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Hlíðarfjall - rekstur 2008-2011
Málsnúmer 2012030169Í upphafi fundar bauð formaður nýráðinn forstöðumann íþróttamála, Ellert Örn Erlingsson, velkominn til starfa.$line$
Lagt fram til kynningar yfirlit Karls Guðmundssonar verkefnastjóra innra eftirlits dags. 1. mars 2012 um rekstur Hlíðarfjalls á árunum 2008-2011.\nGuðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Karli fyrir samantektina og Guðmundi Karli fyrir yfirferðina.

Fjárhagsáætlun 2011 - íþróttaráð
Málsnúmer 2010080052Lagt fram rekstraryfirlit ársins 2011 fyrir þá málaflokka sem heyra undir íþróttaráð.

Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2008080068Að ósk vinnuhóps um mat á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar var farið yfir þau verkefni sem eru á ábyrgð íþróttaráðs. Einnig var rætt almennt um stöðu stefnunnar.

Íþrótta- og tómstundaskóli
Málsnúmer 2012020136Skólanefnd hefur á fundi sínum 20. febrúar sl. óskað eftir að samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð sameinist um að tilnefna einn fulltrúa í starfshóp um skipulag íþrótta- og tómstundaskóla (Heilsdagsskóla) fyrir börn á aldrinum 5-9 ára.

Íþróttaráð og samfélags- og mannréttindaráð tilnefna Þorvald Sigurðsson sem fulltrúa sinn í starfshópnum og óska jafnframt eftir að forstöðumaður íþróttamála vinni með hópnum.

Siglingaklúbburinn Nökkvi - skipulagsmál á félagssvæðinu
Málsnúmer 2012010229Umræður um skipulags- og uppbyggingarmál á félagssvæði Nökkva félags siglingamanna á Akureyri.

Íþróttaráð samþykkir að skipaður verði vinnuhópur til að vinna að undirbúningi skipulags- og uppbyggingarmála á félagssvæði Nökkva. Nói Björnsson og Árni Óðinsson verða fulltrúar íþróttaráðs í hópnum. Íþróttaráð óskar eftir að skipulagsnefnd, Nökkvi og ÍBA tilnefni fulltrúa í vinnuhópinn.

Sundlaug Akureyrar - endurbætur og framtíðarsýn
Málsnúmer 2012020045Í framhaldi af umræðum íþróttaráðs 9. febrúar sl. er lagt til að skipaður verði vinnuhópur sem falið verður að fara yfir nauðsynlegar endurbætur á Sundlaug Akureyrar og móta framtíðarsýn fyrir starfsemina.

Íþróttaráð samþykkir að skipaður verði vinnuhópur til að vinna að mótun framtíðarsýnar fyrir sundlaugar bæjarins. Nói Björnsson og Erlingur Kristjánsson verða fulltrúar íþróttaráðs. Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar og Samúel Jóhannsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Glerárskóla og Giljaskóla starfa með hópnum. Óskað er eftir að stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefni fulltrúa í vinnuhópinn.

Dýrleif Skjóldal vék af fundi kl. 15:40.$line$
Skautasvell í hverfum bæjarins
Málsnúmer 2011110070Tekið fyrir að nýju erindi úr viðtalstímum bæjarfulltrúa 10. nóvember 2011 frá Sigurði Aðils um skautasvell í hverfum bæjarins, sem bæjarráð vísaði til íþróttaráðs á fundi sínum 17. nóvember sl.

Eftir að hafa skoðað málið vandlega með nokkrum deildum bæjarins getur íþróttaráð ekki orðið við erindinu.

Akureyri handboltafélag - styrkbeiðni 2012
Málsnúmer 2012030131Erindi dags. 11. mars 2012 frá Akureyri handboltafélagi þar sem óskað er eftir styrk frá íþróttaráði.

Íþróttaráð frestar afgreiðslu.