Fræðsluráð - 13
- Kl. 13:30 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Baldvin Valdemarsson
- Brynhildur Pétursdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Grunnskólar Akureyrarbæjar - gjaldfrjáls námsgögn
Málsnúmer 2017060154Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður reksturs á fræðslusviði fór yfir verklag og niðurstöður útboðs í kjölfar ákvörðunar fræðsluráðs á fundi þann 26. júní síðastliðinn um að veita gjaldfrjáls námsgögn.
Eftir ákvörðun fræðsluráðs um að veita gjaldfrjáls námsgögn, var farið af stað í örútboð vegna innkaupa á skólagögnum.
Tvö tilboð bárust:
Penninn kr. 6.983.790
Egilsson/A4 kr. 6.450.541
Gengið var til samninga við lægstbjóðanda, Egilsson/A4.
Fræðsluráð vill færa stjórnendum grunnskóla og starfsfólki fræðslusviðs kærar þakkir fyrir að bregðast vel við í upphafi sumars við að ljúka innkaupalistum skólanna þannig að mögulegt yrði að fara í útboðið.Glerárskólareitur - framtíðarskipulag
Málsnúmer 2017080068Sviðsstjóri fræðslusviðs fór yfir stöðu á undirbúningi nýbyggingar leikskóla á Glerárskólareit og hugmyndir um næstu skref.
Rekstur fræðslumála 2017
Málsnúmer 2017040126Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður reksturs á fræðslusviði fór yfir rekstur fræðslumála tímabilið janúar - júní 2017.
Móðurmálskennsla fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku
Málsnúmer 2017080069Árið 2015 kom út skýrsla starfshóps á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um móðurmálskennslu barna með annað móðurmál en íslensku.
Mikilvægt er að Akureyrarbær móti stefnu á þessu sviði.Fræðsluráð telur mikilvægt að skoða þennan málaflokk enn frekar og felur fræðslusviði að safna frekari upplýsingum um málið.
Framkvæmdaáætlun 2016-2020
Málsnúmer 2015090294Umhverfis- og mannvirkjasvið vinnur að endurskoðun á framkvæmdaáætlun fyrir árin 2017-2020. Áætlunin yfirfarin.
Upplýsingar um dagvistunar- og leikskólamál
Málsnúmer 2017010168Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir stöðu mála í innritun í leikskóla og nýja leikskóladeild í Glerárskóla.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Ingunn Högnadóttir vék af fundi kl. 15:53. <br />
Rætt um að móta heildarstefnu í tæknimálum skólanna.