Stjórn Akureyrarstofu - 213
- Kl. 16:15 - 18:40
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 213
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Listasumar og Akureyrarvaka - 2016
Málsnúmer 2016020010Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri menningarmála og viðburða á Akureyrarstofu kom á fundinn og fór yfir dagskrá og framkvæmd Akureyrarvöku sem haldin verður að kvöldi föstudags 26. ágúst og laugardaginn 27. ágúst nk.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi dagskrá Akureyrarvöku og sérstaklega með samstarf Akureyrarstofu, RÚV og N4 vegna viðburðanna í Listagili að kvöldi laugardagsins. Stjórnin þakkar Huldu Sif fyrir greinargóða kynningu.
Menningarfélag Akureyrar - ACO, upptökuhljómsveit SN
Málsnúmer 2014090088Þuríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélagsins og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri félagsins og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mættu á fundinn og fóru yfir stöðu ACO (Arctic Cinematic Orchestra) sem er upptökuhljómsveit SN.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Þuríði og Þorvaldi fyrir komuna og greinargóða kynningu og umræður.
Fjárhagsáætlun 2017 - Stjórn Akureyrarstofu
Málsnúmer 2016080056Forsendur og fjárhagsrammi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 kynnt.
Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2016
Málsnúmer 2015080026Lagðar formlega fram til samþykktar tillögur um breytingar á fjárhagsáætlun yfirstandandi árs í samræmi við niðurstöður aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi tillögur og felur framkvæmdastjóra að ganga frá þeim í samræmi við umræður á fundinum.
Verslunarmannahelgin 2016 - Íslensku sumarleikarnir - styrkbeiðni
Málsnúmer 2016080059Lagt fram erindi dagsett 26. júní 2016 frá Davíð Rúnari Gunnarssyni f.h. Viðburðastofu Norðurlands þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.400.000 vegna Íslensku sumarleikanna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 1.200.000 til verkefnisins. Jafnframt samþykkir stjórnin að fela framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara um mögulegan samning um framtíðarstuðning við hátíðina.