Félagsmálaráð - 1154
- Kl. 14:00 - 17:00
- Lögmannshlíð
- Fundur nr. 1154
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Valdís Anna Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Bryndís Dagbjartsdóttirfundarritari
Tillaga til þingsályktunar um málefni barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun, 80. mál
Málsnúmer 2012100189Lögð fram drög að umsögn vegna tillögunnar.
Félagsmálaráð samþykkir umsögnina og felur starfsmönnum að senda hana til þingnefndar.
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð
Málsnúmer 2012110070Lagt fram og kynnt minnisblað Dans J. Brynjarssonar fjármálastjóra og Guðríðar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 7. nóvember 2012.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Sérstakar húsaleigubætur - breyting á reglum
Málsnúmer 2012010101Lagt fram og kynnt minnisblað Dans J. Brynjarssonar fjármálastjóra og Guðríðar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjardags. 7. nóvember 2012.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
Málsnúmer 2012080060Lögð fram og kynnt drög að reglum Akureyrarbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA).

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Öldrunarrými - staða biðlista
Málsnúmer 2011010134Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild kynnti greiningu á biðlistum eftir dvalarrýmum.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Þjónusta við aldraða með flókna geðsjúkdóma
Málsnúmer 2012060102Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri öldrunarheimila kynnti svar Landlæknisembættis vegna fyrirspurnar um sértækt þjónustuúrræði.

Dagþjónusta í Hlíð - kynning á þjónustukönnun
Málsnúmer 2012110056Friðný B. Sigurðardóttir þjónustustjóri kynnti niðurstöður þjónustukönnunar sem gerð var í dagþjónustu í Hlíð snemma vetrar 2011. Þetta er í annað sinn sem slík þjónustukönnun er gerð, sú fyrri var gerð 2008. Mjög góð þátttaka var í könnuninni og bárust svör frá 90% dagþjónustugesta. Í stuttu máli þá er almenn ánægja með starfsemi dagþjónustunnar og er það hvatning fyrir starfsfólk að halda áfram á sömu braut.

Lögmannshlíð - kynning
Málsnúmer 2012110057Helga Frímannsdóttir og Þóra Sif Sigurðardóttir deildarstjóri kynntu húsnæði og starfsemi Lögmannshlíðar. Flutningar á nýja heimilið gengu vonum framar, 45 íbúar fluttu í nýjar glæsilegar aðstæður á einum degi og voru furðu fljótir að venjast nýjum aðstæðum. Einn heimilislaus íbúi bættist fljótlega í hópinn en það er kötturinn Inja sem bauð sér í heimsókn og hefur síðan átt heima í Lögmannshlíð öllum til ánægju.

Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista vék af fundi kl. 16:56.