Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 645
- Kl. 13:00 - 13:15
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 645
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Undirhlíð 1 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2015120128Erindi dagsett 24. ágúst 2017 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um breytingar á brunahönnun bílgeymslukjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 1 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson og uppfærð brunahönnun.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Ráðhústorg 3 - breytingar á 1. hæð
Málsnúmer 2017080011Erindi dagsett 2. ágúst 2017 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Natten ehf. sækir um breytingar innanhúss á 1. hæð húss nr. 3 við Ráðhústorg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 4. september 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu þar til umbeðin fylgigögn berast.
Óseyri 33 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð
Málsnúmer 2017020126Erindi dagsett 21. febrúar 2017 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð á lóð nr. 33 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar nýjar teikningar 30. ágúst 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Strandgata 29, byggingaleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2017080009Erindi dagsett 4. ágúst 2017 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Vesturkants ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum innandyra í húsi nr. 29 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 29. ágúst 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.