Umhverfisnefnd - 120
- Kl. 10:00 - 12:25
- Kaffistofa framkvæmdadeild
- Fundur nr. 120
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Anna Rósa Magnúsdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Anna Rósa Magnúsdóttir D-lista mætti í forföllum Kristins Frímanns Árnasonar. <br />Óskar Ingi Sigurðsson B-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hans stað. <br />
Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október sl. að senda tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 til umsagnar innan bæjarkerfisins, þ.e. deilda, nefnda og ráða.
Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri mætti á fundinn og kynnti skipulagið.Umhverfisnefnd þakkar Bjarka kynninguna.
Hreinsistöð fráveitu á Akureyri - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2016100084Erindi dagsett 7. október 2016 frá Skipulagsstofnun þar sem kemur fram að Norðurorka hf. hafi sent Skipulagsstofnun frummatsskýrslu um hreinsistöð fráveitu á Akureyri. Samkvæmt 10. gr. laga nr. 106/2000 óskar Skipulagsstofnun eftir umsögn Akureyrarbæjar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Álitið skal gefið í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við skýrsluna.
Plastpokalaus Akureyri - fjölnotapokar
Málsnúmer 2016110041Umræður um plastpokalausa Akureyri og fjölnota innkaupapoka.
Umhverfisnefnd hvetur bæjarbúa og fyrirtæki til að draga úr notkun á plastpokum og einnota vörum. Þá felur nefndin starfsmönnum að afla upplýsinga um möguleg kaup á fjölnota innkaupapokum fyrir næsta fund nefndarinnar.
Lofslagsráðstefnan á Akureyri 2016
Málsnúmer 2016030014Umræður um hvernig til tókst við framkvæmd og skipulag ráðstefnunnar sem haldin var hér 19.- 21. október sl. og næstu skref.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á frekara samstarf vinabæjanna á næstu árum. Fulltrúar vinabæjanna samþykktu á loftslagsráðstefnunni að halda samstarfi áfram að minnsta kosti næstu 5 árin.
Úrgangsmál
Málsnúmer 2014110224Rætt um grenndarstöðvar í Hrísey og Grímsey, flokkunartunnur í miðbæ og fleira.
Umhverfisnefnd telur ekki ásættanlegt hvað framkvæmdir við grenndarstöðvarnar hafa tafist og krefst þess að þeim ljúki á þessu ári. Nefndin óskar einnig eftir því að flokkunarstöð í miðbæ verði sett upp á þessu ári.
Önnur mál í umhverfisnefnd 2016
Málsnúmer 2016080072Rætt um fræðsluferð á Sölvabakka þann 22. nóvember nk.