Bæjarráð - 3512
- Kl. 08:30 - 11:12
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3512
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Myndlistaskólinn á Akureyri
Málsnúmer 2016020216Umræður um Myndlistaskólann á Akureyri.
Helgi Vilberg skólastjóri Myndlistaskólans mætti á fundinn.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2016
Málsnúmer 2016040185Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til maí 2016.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Vestursíða 8 a-b og Núpasíða 2 - lóðarskerðingar vegna skipulags
Málsnúmer 2016050287Lagt fram minnisblað dagsett 30. maí 2016 er varðar bætur vegna skerðingar á lóðum vegna hringtorgs.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir bætur til íbúa í samræmi við skerðingu lóðar og felur fjármálastjóra að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Vinabæir og erlend samskipti - Murmansk
Málsnúmer 2014090064Lagt fram erindi móttekið 10. júní 2016 þar sem þremur fulltrúum Akureyrarbæjar er boðið á 100 ára afmælishátið Murmanskborgar sem haldin verður dagana 9.-11. september nk. í Murmansk.
Bæjarráð samþykkir að þiggja boðið.
Fimleikasamband Íslands - beiðni um afnot af íþróttahúsi Giljaskóla og um gistingu í Giljaskóla 2016
Málsnúmer 2016060146Lagt fram erindi dagsett 23. júní 2016 frá Fimleikasambandi Íslands þar sem þess er farið á leit að landsliðum í hópfimleikum sé veitt heimild til æfinga í íþróttahúsi Giljaskóla og gistingar í Giljaskóla frá miðvikudeginum 6. júlí til sunnudagsins 10. júlí nk.
Bæjarráð samþykkir beiðni Fimleikasambands Íslands um afnot af íþróttahúsi Giljaskóla og gistingu í Giljaskóla. Kostnaður vegna gistingar færist af styrkveitingum bæjarráðs.
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál
Málsnúmer 2016060089Lagt fram til kynningar erindi dagsett 13. júní 2016 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. júlí 2016 á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1285.html