Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 263
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 263
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Stöðuskýrslur FA 2015
Málsnúmer 2015040077Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 4 fyrir stjórn FA dagsett 24. júní 2015.
Skautahöllin - endurnýjun á svelli
Málsnúmer 2015020134Lagt fram minnisblað dagsett 24. júní 2015 um stöðuna á hönnun vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Kynnt var kostnaðaráætlun fyrir endurnýjun á skautasvelli og stækkun á æfingarými innadyra í Skautahöllinni.
Stjórnin samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar hjá íþróttaráði.
Ingibjörg Ólöf Isaksen, B-lista, vék af fundi eftir umræður og afgreiðslu þessa liðar.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lagt fram minnisblað dagsett 24. júní 2015 um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir við sundlaugarsvæðið.
Kynnt var kostnaðaráætlun fyrir rennibrautir, nýjan pott, endurbætur á barnapotti og endurnýjun á yfirborðsefni. Stjórnin samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar hjá íþróttaráði.
Grímsey - beiðni um sparkvöll í Grímsey
Málsnúmer 2015060187Tekinn fyrir 7. liður í fundargerð 20. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsett 22. apríl 2015 sem bæjarráð vísaði til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar á fundi sínum þann 21. maí sl. þar sem hverfisráðið óskar eftir því að gerður verði sparkvöllur í Grímsey.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar málinu til umfjöllunar í íþróttaráði.
Verkfundargerðir FA 2015
Málsnúmer 2015010093Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Naustaskóli kennaraálma: 7. og 8. verkfundur dags. 5. og 19. júní 2015.
Naustaskóli íþróttahús: 1.- 4. verkfundur dags. 22. apríl, 8. maí, 5. og 19. júní 2015.
Nökkvi uppbyggingarsamningur: 5. fundur verkefnisliðs dags. 12. júní 2015.
Skautahöll endurnýjun á svelli: 6.- 9. fundur verkefnisliðs dags. 3., 9., 10. og 16. júní 2015.
Þ99 kjallari: 3. verkfundur dags. 15. júní 2015.