Umhverfis- og mannvirkjaráð - 85
- Kl. 08:15 - 11:04
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 85
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Umferðaröryggismál - gönguþveranir
Málsnúmer 2020020504Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar- og tæknideildar kom og kynnti umferðarljós, gönguljós og umferðaröryggismál í bænum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar Jónasi Valdimarssyni fyrir kynninguna.
Naustahverfi VII - Hagar, gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2019110185Niðurstaða dómsmáls varðandi gerð Hagahverfis kynnt fyrir ráðinu.
Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur
Málsnúmer 2019090381Lagt fram bréf frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga dagsett 8. september 2020 varðandi rekstur félagsins.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að taka upp viðræður við Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021
Málsnúmer 2020080605Áætlun á stöðugildum hjá UMSA lögð fyrir ráðið ásamt eignfærsluáætlun, gjaldskrám UMSA og fjárhagsáætlun umhverfismiðstöðvar.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 133 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Sigurjón Jóhannesson D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista sátu hjá við afgreiðsluna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna eignfærsluáætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum og þann fjárhagsramma sem er væntanlegur frá bæjarráði.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskráa til næsta fundar.