Íþróttaráð - 184
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 184
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Málsnúmer 2015120126Á fundi sínum 15. desember 2015 óskaði Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar eftir tilnefningu fulltrúa frá íþróttaráði í verkefnislið vegna framkvæmdanna.
Íþróttaráð tilnefnir Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B-lista sem fulltrúa í verkefnislið Fasteigna Akureyrarbæjar vegna endurnýjunar á gervigrasi í Boganum.
Guðrún Þórsdóttir V-lista mætti til fundar kl. 14:22.
Sundkort til afreksmanna
Málsnúmer 2012100159Áfram unnið að verklagi og vinnureglum fyrir afhendingu sundkorta til afreksmanna á Akureyri.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Gos- og sælgætissala í íþróttamannvirkjum
Málsnúmer 2013040222Umræður um sölu gos og sælgætis í íþróttamannvirkjum.
Vilji er hjá íþróttaráði að sala á gosi og sælgæti fari ekki fram á skólatíma í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar. Forstöðumanni íþróttamála falið að vinna málið áfram með forstöðumönnum íþróttamannvirkja.
Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda - frístundastyrkur - tómstundaávísun
Málsnúmer 2006040018Farið yfir nýtingu og notkun á frístundastyrk árið 2015.
Lagt fram til kynningar.
Ungmennaráð - starfsemi
Málsnúmer 2011030133Jörundur Guðni Sigurbjörnsson, Snædís Sara Arnedóttir, Hulda Margrét Sveinsdóttir og Guðný Rún Ellertsdóttir úr ungmennaráði og Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi mættu á fundinn til að ræða sameiginlega hagsmuni íþróttaráðs og ungmennaráðs.
Íþróttaráð þakkar fulltrúum ungmennaráðs fyrir komuna á fundinn.