Skólanefnd - 17
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 17
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Kristín Jóhannesdóttirfulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- fulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Kristlaug Þ Svavarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Veitingar á fundum skólanefndar
Málsnúmer 2013100161Í upphafi fundar óskaði formaður eftir samþykki fundarmanna fyrir því að taka inn á dagskrána erindi frá Grímseyjarskóla sem nýtt mál.$line$
Fyrir fundinum lá tillaga um að ekki verði framvegis boðið upp á aðrar veitingar á fundum skólanefndar en kaffi, te og vatn.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu samhljóða.

Skólaþing sveitarfélaga 2013
Málsnúmer 2013090237Skólaþing sveitarfélaga verður haldið á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík þann 4. nóvember nk. Dagskrá þingisins var lögð fram til kynningar og 2 kjörnum fulltrúum í skólanefnd auk formanns boðið að fara á ráðstefnuna, hafi þeir tök á því.

Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista bókar að hún gerir athugasemd við rýran hlut leikskólans í Skólaþingi sveitarfélaga 2013.

Skólaskýrsla 2013
Málsnúmer 2013100196Skólaskýrsla 2013 er komin út. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað. Í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2012 og að auki birtar upplýsingar aftur í tímann eins og kostur er. Tölulegar upplýsingar ná til málaflokkanna á landsvísu en einnig eru þeim gerð skil eftir landshlutum og eru að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga.\nFarið var yfir helstu atriði skýrslunnar, en kjörnir fulltrúar fengu afhent eintak á fundinum.

Langtímaáætlun - fræðslumál
Málsnúmer 2013020252Langtímaáætlun skólanefndar til umræðu\nFarið var yfir drög sem lágu fyrir eftir vinnu á síðustu fundum nefndarinnar.

Skóladagatal 2013-2014
Málsnúmer 2013040031Erindi dags. 8. október 2013 frá skólastjóra Grímseyjarskóla, þar sem óskað er eftir samþykki skólanefndar fyrir breytingu á skóladagatali skólans starfsárið 2013-2014. Fram kemur í erindinu að samþykki foreldra fyrir breytingunni liggi fyrir.

Skólanefnd staðfestir breytt skóladagatal Grímseyjarskóla.