Atvinnumálanefnd - 21
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 21
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirverkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Atvinnustefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2011110167Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður íþróttaráðs og Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála mættu til fundar við nefndina til að ræða verkefni í atvinnustefnu sem snúa að íþróttamálum. Undir þessum lið var einnig rætt um þær ábendingar sem komu fram í umræðum um stefnuræðu formanns atvinnumálanefndar á bæjarstjórnarfundi 1. mars síðastliðinn.
Í framhaldi var farið í gegnum þær athugasemdir sem komu fram á bæjarstjórnarfundi við stefnuræðu formanns atvinnumálanefndar.Atvinnumálanefnd þakkar Ingibjörgu og Ellerti fyrir komuna og fagnar því að góður gangur sé í verkefnum atvinnustefnu.
Samstarf um fræðslu og hugmyndafundi
Málsnúmer 2016040125Rætt að beiðni Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur um möguleika á auknu samstarfi Akureyrarbæjar, SÍMEY, Háskólans á Akureyri og fleiri aðila um opna fræðslufundi og námskeið.
Atvinnumálanefnd felur verkefnastjóra atvinnumála að kalla saman fulltrúa þessara aðila á fund til að ræða hvernig hægt sé að bæta aðgengi atvinnulífs á Akureyri að fræðslufundum og námskeiðum.
Atvinnumálanefnd - kynjuð fjárhagsáætlun
Málsnúmer 2015040049Farið var yfir stöðu verkefnis í tengslum við kynjaða fjárhagsáætlun sem skilað verður í haust.
Verkefni atvinnufulltrúa
Málsnúmer 2015070006Verkefnisstjóri atvinnumála fór yfir helstu mál síðustu vikna.