Stjórn Akureyrarstofu - 197
- Kl. 16:15 - 18:10
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 197
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Akureyrarvaka 2015
Málsnúmer 2015010036Lögð fram greinargerð um framkvæmd og rekstur Akureyrarvöku 2015. Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála á Akureyrarstofu mætti á fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Huldu Sif fyrir greinargóða yfirferð á vel heppnaðri Akureyrarvöku.
Menningarsjóður 2016 - styrkveitingar
Málsnúmer 2015100080Farið yfir tímaramma fyrir styrkveitingar og ákvarðanir um starfslaun listamanna úr Menningarsjóði á næsta ári. Jafnframt rætt um skipan ráðgjafahóps stjórnarinnar vegna starfslaunanna.
Ákveðið að hafa úthlutun úr Menningarsjóði fyrr á árinu 2016 en verið hefur undanfarin ár. Auglýst verður eftir umsóknum í desember á yfirstandandi ári.
Listasumar 2015
Málsnúmer 2014080143Lögð fram greinargerð um framkvæmd og rekstur Listasumars 2015. Guðrún Þórsdóttir verkefnisstjóri hátíðarinnar mætti á fundinn og Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri tók þátt í umræðum í gegnum Skype.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Guðrúnu og Hlyni fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlega umræðu. Jafnframt óskar stjórnin þeim og öðrum aðstandendum til hamingju með endurvakið Listasumar á Akureyri.
Umsókn um áframhaldandi afnot af Friðbjarnarhúsi fyrir Leikfangasýningu
Málsnúmer 2015100043Erindi dags. 5. október 2015 frá Guðbjörgu Ringsted, f.h. Leikfangasýningarinnar í Friðbjarnarhúsi, þar sem óskað er eftir áframhaldandi notum sýningarinnar af húsnæðinu en samningur þar um rennur út í lok yfirstandandi árs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að núverandi samningur verði framlengdur um eitt ár.