Skólanefnd - 6
- Kl. 13:00 - 15:00
- Hríseyjarskóli
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
Heimsóknir í skóla
Málsnúmer 2014080063Heimsókn í Hríseyjarskóla.
Þórunn Arnórsdóttir skólastjóri sýndi húsnæði skólans og kynnti starfsemina.Skólanefnd þakkar Þórunni fyrir kynninguna.
Háskólinn á Akureyri og Akureyrarkaupstaður - rammasamningur
Málsnúmer 2011110017Rammasamningur Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri, skólaþróunardeildar.
Skólanefnd samþykkir endurnýjun samnings við Háskólann á Akureyri og vísar samningnum til bæjarráðs.
Leikskólar - umsögn vegna grunnskólabarna
Málsnúmer 2009060024Skil milli skólastiga.
Skólanefnd samþykkir samræmt skilaform sem ætlunin er að setja upp milli leik- og grunnskóla.
Fræðslustjóra falið að kanna athugasemdir sem fram komu á fundinum varðandi endanlegt form skilablaða.Hollvinasamtök Húna II - samkomulag vegna verkefnisins Frá öngli í maga
Málsnúmer 2015030138Skólanefnd samþykkir endurnýjaðan samning við Hollvini Húna varðandi skólaverkefnið Frá öngli í maga.
Búnaðarkaup fyrir skóla og leikskóla - óskir skóladeildar um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar
Málsnúmer 2014050129Fyrir fundinn var lögð tillaga að skiptingu fjármagns til búnaðarkaupa fyrir leik-, grunn- og Tónlistarskóla árið 2015.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna kaupanna.
Skólanefnd óskar þó eftir að stofnbúnaður fyrir nýja stjórnunarálmu í Naustaskóla verði tekinn af lista um endurbætur og færður undir stofnkostnað vegna skólans.
Kynjasamþætting og kynjuð fjárhagsáætlanagerð
Málsnúmer 2011030090Stutt kynning á hugmyndafræði um kynjaða fjárhagsáætlanagerð.
SAMTAKA - gjöf - seglar á ísskápa
Málsnúmer 2015030198SAMTAKA samtök foreldrafélaga. Kynning á forvarnaverkefni.
Skólanefnd þakkar Heimi Eggerz Jóhannssyni fulltrúa SAMTAKA fyrir kynninguna.