Bæjarstjórn - 3380
- Kl. 16:00 - 17:59
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3380
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Logi Már Einarsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga frá Æ-lista um breytingu á skipan aðalmanns og varamanns í íþróttaráði og varaáheyrnarfulltrúa í samfélags- og mannréttindaráði:
Íþróttaráð:
Jónas Björgvin Sigurbergsson tekur sæti aðalmanns í stað Sigurjóns Jónassonar og Áshildur Hlín Valtýsdóttir tekur sæti varamanns í stað Jónasar Björgvins Sigurbergssonar.
Samfélags- og mannréttindaráð:
Kristín Björk Gunnarsdóttir tekur sæti varaáheyrnarfulltrúa í stað Jóns Gunnars Þórðarsonar.Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar - endurskoðun 2015
Málsnúmer 20150200555. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 11. september 2015:
Ræddar hugmyndir að breytingum á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar.
Bæjarráð vísar umræðum um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar til bæjarstjórnar.Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa málinu til bæjarráðs og óskar eftir að ráðið geri tillögur að breytingum.
Fjármál sveitarfélaga - hver á að borga?
Málsnúmer 2015080137Umræður um fjármál sveitarfélaga með áherslu á málefni fatlaðs fólks.
Lögð fram tillaga að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar áréttar mikilvægi þess að fjármögnun á málaflokki fatlaðs fólks verði tryggð. Mikilvægt er að ríkið komi þegar í stað með viðbótarfjármagn til að mæta hallarekstri sveitarfélaganna á málaflokki fatlaðs fólks og ekki síður að fjármögnun málaflokksins verði tryggð til framtíðar. Þá áréttar bæjarstjórn Akureyrar að afar brýnt er að þegar í stað verði gengið frá fjármögnun öryggisvistunar sem sveitarfélagið er að sinna.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2010090095Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi.