Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 603
- Kl. 13:00 - 14:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 603
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Björn Jóhannsson
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Vörðutún 2 - umsókn um garðskúr
Málsnúmer 2016090124Erindi dagsett 19. september 2016 þar sem Pálmi Gauti Hjörleifsson sækir um leyfi fyrir 14,5 m² garðskúr á lóð nr. 2 við Vörðutún skv. meðfylgjandi myndum. Fyrir liggur umsögn framkvæmdadeildar vegna sjónvegalengda.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Brautarhóll - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016090181Erindi dagsett 30. september 2016 þar sem Þorsteinn H. Jónsson sækir um leyfi til að gera bílastæði við Brautarhól með aðkomu frá Þverholti í stað núverandi stæðis við Krossanesbraut. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri heimilar umsækjanda að gera á eigin kostnað 6 metra breitt bílastæði. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi hafi samband við framkvæmdadeild vegna úrtaks í kantstein.
Miðhúsabraut 1 - Skautahöll - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum
Málsnúmer 2015060060Erindi dagsett 24. júní 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Miðhúsabraut 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar teikningar 8. júlí 2016 og 3. október 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016090043Erindi dagsett 8. september 2016 þar sem Kári Magnússon f.h. Ríkiseigna, kt. 690981-0259, sækir um breytingar á 8. áfanga VMA við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 3. október 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Sómatún 3 - byggingarleyfi
Málsnúmer BN060266Erindi dagsett 5. október 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 3 við Sómatún.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Gleráreyrar 1, bil 27, 28 og 29 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016100035Erindi dagsett 27. september 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd EF1 ehf., kt. 681113-0960, sækir um breytingar á bilum 27, 28 og 29 á Glerártorgi, Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Þórsstígur 4 - umsókn um byggingarleyfi - viðbygging og breytingar inni
Málsnúmer BN100184Lagðar fram teikningar eftir Loga Má Einarsson með breytingum frá áður samþykktum teikningum af Þórsstíg 4 vegna athugasemda við lokaúttekt. Innkomnar teikningar 27. september 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Grænamýri 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016090149Erindi dagsett 23. september 2016 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Harrys Reynis Ólafssonar sendir inn fyrirspurn vegna breytinga á húsi nr. 3 við Grænumýri. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.
Jaðarstún 17-19 - umsókn um úrtöku á kantsteini
Málsnúmer 2016090140Erindi í tölvupósti dagsettum 22. september 2016 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um stækkun á úrtaki í kantstein við húsið nr. 17-19 við Jaðarstún skv. meðfylgjandi teikningu.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem aðeins þarf úrtak fyrir tvo bíla fyrir hvora íbúð skv. samþykktri teikningu.