Skólanefnd - 24
- Kl. 13:30 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 24
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Fjárhagsáætlun fræðslumála 2016-2019
Málsnúmer 2015050243Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðu í kjölfar gjaldskrárbreytinga vegna kjarasamninga.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Eva Hrund Einarsdóttir fulltrúi D-lista og Preben Jón Pétursson fulltrúi Æ-lista sátu hjá.Gjaldskrá dagforeldra 2016
Málsnúmer 2015120050Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild kynnti.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrár og óskar samhliða eftir fjárveitingu að upphæð kr. 5 milljónir króna til að mæta afturvirkum greiðslum á hlut bæjarfélagins vegna kjarasamnings frá 1. maí 2015.
Skólanefnd beinir því til fræðslustjóra að taka upp viðræður við dagforeldra um gildandi samning hvað varðar réttindi og skyldur beggja aðila.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019
Málsnúmer 2015100143Lögð fram til umræðu og samþykktar.
Skólanefnd samþykkir framlagða Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar 2015-2019 með framlögðum athugasemdum.
Seinkun á byrjun skóladags
Málsnúmer 2015120046Logi Már Einarsson formaður skólanefndar ræddi hugmyndir um að byrja skóladag í grunnskólum síðar að deginum en nú er.
Fræðslustjóra falið að tilnefna hóp til að skoða kosti og galla við seinkun á skóladegi á unglingastigi.