Velferðarráð - 1223
- Kl. 14:00 - 16:53
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1223
Nefndarmenn
- Róbert Freyr Jónssonvaraformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Bryndís Dagbjartsdóttirfundarritari
Uppsögn leiguíbúða 2016 - áfrýjanir
Málsnúmer 2016010207Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi kynntu áfrýjun vegna uppsagnar á leiguhúsnæði bæjarins.
Áfrýjanir eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.
Fjárhagserindi 2016 - áfrýjanir
Málsnúmer 2016010011Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.
Notendaráð fatlaðs fólks á Akureyri
Málsnúmer 2012020024Kynnt niðurstaða vegna umsóknar um styrk frá velferðarráðuneytinu vegna notendaráðs í málaflokki fatlaðra. Fyrstu skref rædd.
Velferðarráð lýsir yfir ánægju sinni með styrkveitingu frá velferðarráðuneytinu að upphæð kr. 1.100.000 til að stofna notendaráð í málaflokki fatlaðs fólks. Ráðið felur starfsfólki að vinna áfram að málinu.
Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2016
Málsnúmer 2016020003Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynnti húsnæðismál fjölskyldu fatlaðs barns.
Afgreiðsla einstaklingsmála er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Búsetudeild - einstaklingsmál 2016
Málsnúmer 2016020007Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar fóru yfir stöðu á biðlista eftir sértæku búsetuúrræði svo og stöðu nokkurra einstaklinga í búsetuþjónustu og fyrirhugaðar breytingar þeim tengdum.
Velferðarráð þakkar kynninguna og felur starfsmönnum að vinna málið áfram.
Öldrunarþjónusta Akureyrarbæjar - rekstrarúttekt
Málsnúmer 2015090082Lögð fram til kynningar samantekt um Öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar - þróun, stöðu og framtíðarhorfur, unnin af KPMG í janúar 2016.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, kynntu og svöruðu spurningum um samantekina.Valur Sæmundsson V-lista vék af fundi kl. 15:52.
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Lögð fram að nýju, tillaga framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Halldórs Guðmundssonar, að endurskoðuðu skipuriti ÖA. Tillagan byggir á fyrra skipuriti en tekur mið af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á síðustu árum.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Halldórs Guðmundssonar að endurskoðuðu skipuriti Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - rekstur
Málsnúmer 2015010160Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Halldór Guðmundsson, kynnti hugmyndir og áform um að draga úr starfsemi ÖA yfir sumartíma, s.s. að draga tímabundið úr opnum rýmum vegna hvíldardvala og fullnýta ekki dagþjálfunarrými. Slíkar aðgerðir sem stæðu yfir í 5 vikur sumarið 2016, geta dregið úr launakostnaði vegna sumarafleysinga. Til að halda fullri nýtingu rýma á ársgrunni, mun þurfa að auka nýtinguna (yfirbóka) aðra mánuði ársins. Fjárhagslegur sparnaður gæti numið 2-2,5 millj. kr. en ókostirnir eru óvissa um hvaða áhrif slík aðgerð hefur á notendur, aðstandendur og aðra þætti þjónustukeðjunnar fyrir eldra fólk s.s. heimaþjónustu Akureyrarbæjar.
Ákvörðun um aðgerðir sem þessar þarf að taka núna vegna auglýsinga og ráðninga sumarafleysingafólks.Velferðarráð óskar eftir að Öldrunarheimili Akureyrarbæjar fari í viðræður við búsetudeild Akureyrarbæjar, fulltrúa Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sjúkrahússins á Akureyri vegna fjölda rýma hvíldar- og skammtímainnlagna yfir sumartímann.
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015120146Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar kynntu erindisbréf aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar sem bæjarstjórn ákvað að skipa 14. desember 2015.
Velferðarstefna 2014-2018
Málsnúmer 2015010191Staða vinnu við gerð velferðarstefnu 2014-2018 kynnt og rædd.
Anna Lilja Björnsdóttir verkefnisstjóri velferðarstefnu sat fundinn undir þessum lið.Stefna um nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2015100006Samstarfssamningur um styrkveitingu til samstarfsverkefna Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, búsetudeildar Akureyrarbæjar og velferðarsviðs Reykjavíkur, á sviði velferðartækni var kynntur.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Félagslegar íbúðir - framtíðarsýn
Málsnúmer 2016010150Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir tilnefningu frá velferðarráði í verkefnislið vegna byggingar íbúða sem eru á 3ja ára framkvæmdaáætlun bæjarins.
Velferðarráð tilnefnir Róbert Frey Jónsson sem fulltrúa sinn og Halldóru Kristínu Hauksdóttur til vara.