Íþróttaráð - 193
- Kl. 14:00 - 15:56
- Félagsheimili Þórs, Hamri við Skarðshlíð
- Fundur nr. 193
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Íþróttaráð - heimsóknir í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2011040054Skoðunarferð um félagssvæði Þórs.
Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2015
Málsnúmer 2015010102Á fundi sínum 15. mars 2015 vísaði bæjarráð 4. lið úr fundargerð 66. fundar Hverfisráðs Naustahverfis þann 3. mars 2015 til íþróttaráðs.
Liður úr fundargerð:
Íþróttahús Naustaskóla.
Eins og flestir vita þá á nýtt íþróttahús við Naustaskóla að vera tilbúið á vordögum
árið 2016. Óskar hverfisnefndin eftir því að fá aðgang að íþróttahúsinu fyrir íbúa hverfisins
í 2 klukkustundir á laugardagsmorgnum yfir vetrartímann. Hugmynd frá hverfisnefnd
er að nefndin fái í samstarf við sig foreldrafélög/ráð Naustatjarnar og Naustaskóla
að sjá um þessa tíma og skipulagningu á þeim.Íþróttahús Naustaskóla verður einungis notað fyrir skólaíþróttir veturinn 2016-2017.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Rekstrarstyrkir íþróttaráðs til aðildarfélaga ÍBA
Málsnúmer 2014100111Erindi dagsett 31. maí 2016 frá forstöðumanni íþróttamála varðandi rekstrarstyrki til aðildarfélaga ÍBA árið 2016.
Íþróttaráð samþykkir að veita styrki til aðildarfélaga ÍBA í samræmi við umræðu á fundinum og felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.
Aðildarfélög ÍBA - áætlanir og ársreikningar
Málsnúmer 2012100168Samantekt frá Karli Guðmundssyni lögð fram til kynningar og umræðu um rekstur íþróttafélaga árið 2015 sem eru með rekstrarsamning við Akureyrarbæ.
Fundaáætlun íþróttaráðs
Málsnúmer 2013010128Drög að fundaáætlun íþróttaráðs fyrir haustið 2016 lögð fram.
Íþróttaráð samþykkir drögin að fundaáætlun haustsins 2016.
Íþróttaráð - langtímaáætlun
Málsnúmer 2013030343Umræður um langtímaáætlun og verkefni íþróttaráðs.
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Umræður um fjárhagsáætlunarvinnu fyrir starfsárið 2017.
Steinnes - húsaleigusamningur
Málsnúmer 2013050311Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum þann 30. maí 2016:
Lögð fram beiðni núverandi leigutaka um að leigusamningurinn verði framlengdur um eitt ár.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar málinu til íþróttaráðs.Íþróttaráð samþykkir erindið og óskar eftir að Fasteignir Akureyrarbæjar gangi frá samningi um leigu og kjör.