Velferðarráð - 1249
- Kl. 14:00 - 16:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1249
Nefndarmenn
- Róbert Freyr Jónssonvaraformaður
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA lagði fram og kynnti uppfært skorkort ÖA fyrir tímabilið 2013-2016.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017
Málsnúmer 2017010088Lögð fram til kynningar rekstraryfirlit búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrarbæjar fyrir janúar 2017.
Lúðvík Freyr Sæmundsson fjármálastjóri ÖA, Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Samþykktir fastanefnda 2017
Málsnúmer 2017020082Samþykkt fyrir velferðarráð aftur á dagskrá. Málinu var frestað á fundi ráðsins 15. febrúar sl.
Velferðarráð samþykkir breytingar fyrir sitt leyti og mun Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs fylgja málinu eftir.
Velferðarráð - vinabæjasamskipti 2017
Málsnúmer 2017030126Fyrirhugað er að halda árlegan vinabæjafund á sviði heilbrigðis- og félagsmála á Akureyri árið 2017.
Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs kynnti stöðu mála við undirbúning hans.
Einnig lagt fram til kynningar boð á vinabæjafund um málefni fatlaðs fólks sem haldinn verður í Västerås í Svíþjóð 31. maí - 2. júní nk.Velferðarráð er almennt hlynnt þátttöku í vinabæjasamstarfi.
Búsetudeild - ársskýrsla 2016
Málsnúmer 2017020137Lögð fram til kynningar drög að ársskýrslu búsetudeildar fyrir árið 2016.
Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Búsetusvið - stjórnsýslubreytingar
Málsnúmer 2017030128Kynntar tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti búsetusviðs.
Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.
Fjölskyldusvið - stjórnsýslubreytingar
Málsnúmer 2017030129Kynntar tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti fjölskyldusviðs.
Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.
Fjárhagserindi 2017 - áfrýjanir
Málsnúmer 2017010078Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti áfrýjun varðandi fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Jón Hrói Finnsson vék af fundi kl. 16:15.
Fjárhagsaðstoð 2017
Málsnúmer 2017010094Lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu tvo mánuði ársins.
Fjárhagsáætlun 2017- velferðarráð
Málsnúmer 2016080074Lagt fram yfirlit um breytingu á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs vegna flutnings skólaþjónustu til fræðslusviðs.
Velferðarráð samþykkir breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2017.