Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 664
- Kl. 13:00 - 14:20
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 664
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Björn Jóhannsson
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Hafnarstræti 75 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018010063Erindi dagsett 5. janúar 2018 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 75 við Hafnarstræti. Sótt er um að minnka húsið í suðvesturhorni vegna nýs neyðarstiga frá aðliggjandi húsi.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hafnarstræti 73 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018010064Erindi dagsett 5. janúar 2018 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf. sækir um að leyfi til að setja glugga á vesturhlið, neyðarútganga á norðurhlið og gera breytingar og útbúa 16 eininga gistiheimili í húsi nr. 73 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Þórunnarstræti 128 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2018010352Erindi dagsett 24. janúar 2018 þar sem Guðmundur Jón Halldórsson fyrir hönd eigenda Þórunnarstrætis 128 sækir um að fá sérmerkt 4-6 stæði við Þórunnarstræti, norðan lóðarinnar Þórunnarstrætis 128, fyrir þær þrjár íbúðir sem eru í húsinu.
Byggingarfulltrúi getur ekki orðið við erindinu þar sem Akureyrarbær sérmerkir ekki bílastæði utan lóða.
Byggingarfulltrúi getur í stað þess samþykkt að lóðarhafar útbúi 3 bílastæði í suðaustur horni lóðarinnar við Þórunnarstræti 128, með aðkomu frá Bjarkarstíg skv. meðfylgjandi mynd. Vísað er til vinnureglna um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.Lundargata 17 - fyrirspurn vegna íbúðarhúsnæðis
Málsnúmer 2018010369Erindi dagsett 26. janúar 2018 þar sem Petar Hristov Slavkov leggur inn fyrirspurn hvort leyfi fáist til að útbúa íbúðarhúsnæði í skúr á lóð nr. 17 við Lundargötu.
Í gildandi deiliskipulagi er gert réð fyrir parhúsi og bílgeymslu á lóðinni og að núverandi byggingar verði fjarlægðar. Núverandi skúr er ekki innan byggingarreits í deiliskipulagi. Skúrinn uppfyllir engar kröfur til íbúðarhúsnæðis í gildandi byggingarreglugerð og þyrfti því algerrar endurnýjunar við. Byggingarfulltrúi telur að uppbygging á lóðinni eigi að vera í samræmi við gildandi deiliskipulag og hafnar því endurnýjun núverandi skúrs til íbúðar.
Strandgata 3 - eignarhluti 0102, verslun og skrifstofurými
Málsnúmer 2018010325Erindi dagsett 24. janúar 2018 þar sem Sólveig L. Tryggvadóttir fyrir hönd Símans hf. sækir um byggingarleyfi til að breyta rými 0102 í húsi nr. 3 við Strandgötu í verslun og skrifstofurými. Meðfylgjandir eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson. Innkomin ný teikning 30. janúar 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.