Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 716
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 716
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Undirhlíð 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokun
Málsnúmer 2019030104Erindi móttekið 8. mars 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Húsfélagsins Undirhlíð 1, kt. 630318-2110, sækir um byggingarleyfi fyrir uppsetningu á svalalokunarkerfi á svalir allra íbúða í húsi nr. 1 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 25. mars 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hvannavellir 14 - umsókn um breytingar á 1. hæð
Málsnúmer 2019030085Erindi móttekið 27. febrúar 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Reita skrifstofa ehf., kt. 530117-0730, sækir um breytingar á 1. hæð Hvannavalla 14, suðurhluta. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 18. mars 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hamarstígur 25 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019020028Erindi dagsett 18. mars 2019 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Sólveigar Ingunnar Skúladóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki og risi á Hamarstíg 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Jafnframt er óskað eftir heimild til að hefja framkvæmdir við að rífa innanhúss.
Byggingarfulltrúi heimilar niðurrif á öðru en burðarvirki, en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.