Bæjarráð - 3882
- Kl. 08:15 - 09:31
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3882
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttirvaraformaður
- Hlynur Jóhannsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Olga Margrét Kristínard. Cilialögfræðingur
Sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst
Málsnúmer 2024010005Rætt um sameiningarviðræður Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð þakkar Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri fyrir komuna.
Brynja, Hússjóður Öryrkjabandalagsins - stofnframlög, uppbygging á Akureyri 2022-2026
Málsnúmer 2022030528Umsókn dagsett 17. febrúar 2025 frá Brynju leigufélagi ses. þar sem stótt er um stofnframlög vegna kaupa á fimm íbúðum fyrir öryrkja á Akureyri.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fundinn undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir umsóknina þar sem gert er ráð fyrir 12% stofnframlagi Akureyrarbæjar vegna kaupa á fimm íbúðum á þessu ári.
Fylgiskjöl
Hafnasamlag Norðurlands 2025
Málsnúmer 2025020563Lagt fram erindi dagsett 18. febrúar 2025 frá Ingu Dís Sigurðardóttur formanni Hafnasamlags Norðurlands þar sem tilkynnt er um endurráðningu Péturs Ólafssonar sem hafnarstjóra til næstu fimm ára.
Lagt fram til kynningar.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2025
Málsnúmer 2025021061Lögð fram til kynningar fundargerð 70. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem var haldinn miðvikudaginn 5. febrúar 2025.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Málsnúmer 2025020133Lagðar fram til kynningar fundargerðir 965., 966., 967., 968. og 969. fundar stjórnar Sambandsins frá 18., 19., 20., 21. og 24. febrúar 2025. Fundargerðirnar hafa jafnframt verið birtar á vef Sambandsins með þeim gögnum sem lögð voru fram á fundunum.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál og beiðni um umsögn
Málsnúmer 2023110686Lagt fram erindi dagsett 21. febrúar 2025 þar sem tilkynnt er að frestur til að veita umsögn um drög að frumvarpi um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hefur verið framlengdur til 5. mars næstkomandi. Frumvarpsdrögin eru að grunni til þau sömu og birt voru 2023. Athygli er þó vakin á því að ákvæði, sem hafði verið fellt brott frá fyrstu kynningu 2023 og felur í sér að það leiðir til lækkunar framlaga úr Jöfnunarsjóði ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars, er nú aftur að finna í frumvarpsdrögunum sem kynnt eru.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjársýslusviðs að senda inn umsögn um frumvarpsdrögin.