Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 948
04.01.2024
Hlusta
- Kl. 13:00 - 13:50
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 948
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Hafnarstræti 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi
Málsnúmer 2021023171Erindi dagsett 3. janúar 2024 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða Fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir 4 íbúða timburhúsi á lóð nr. 34 við Hafnarstræti. Innkomin gögn eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hafnarstræti 36 - umsókn um byggingarleyfi fyrir 4 íbúða húsi
Málsnúmer 2021023172Erindi dagsett 8. desember 2023 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 36 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 4. janúar 2024 eftir Þorgeir Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.