Stjórn Akureyrarstofu - 303
- Kl. 14:00 - 17:25
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 303
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Sigríður Ólafsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðforstöðumaður Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Mannréttindastefna 2020-2023
Málsnúmer 2019030417Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifstofustjóri og jafnréttisráðgjafi kynnti nýja mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Bryndísi fyrir greinargóða kynningu.
Fylgiskjöl
Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni
Málsnúmer 2020020492Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni lagður fram til umræðu.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021
Málsnúmer 2020060900Farið yfir stöðu á vinnu við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2021.
Menningarsjóður 2020
Málsnúmer 2020030481Þegar markaðs- og vöruþróunarátak fyrir sumarið 2020 var í undirbúningi var lagt upp með að aukaúthlutun úr Menningarsjóði færi fram nú í haust. Rætt um fyrirkomulag og áherslur hennar. Áætlað er að 5 m.kr. fari til úthlutunarinnar.
Stjórnin felur forstöðumanni Akureyrarstofu að útfæra ramma og viðmið fyrir úthlutunina. Stjórnin leggur áherslu á verkefni sem eru atvinnuskapandi sem og viðburði sem svala þorsta bæjarbúa og gesta eftir því að njóta menningar. Horft verður sérstaklega til lausna í viðburðahaldi sem taka mið af síbreytilegu umhverfi sóttvarna á tímum COVID-19.
Markaðsátak á tímum COVID-19
Málsnúmer 2020040169Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu kynnti hugmyndir um áframhaldandi markaðs- og ferðaþjónustuátak fyrir veturinn 2020/2021.
Stjórnin felur starfsfólki Akureyrarstofu að vinna áfram að markaðssátaki fyrir komandi vetur og leiða saman hagsmunaðila í ferðaþjónustu, verslun, menningar- og afþreyingargeira. Farið verði í sameiginlega kynningu á Akureyri sem vetraráfangastað og stuðlað að þróun tilboða og viðburða sem taki mið af ólíkum tímabilum vetrarins, til dæmis í tengslum við jólaverslun, leikhús, skíði og útivist.
Markaðssetning á íbúamarkaði - samkeppnisgreining
Málsnúmer 2019010151Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu gerði grein fyrir hugmyndum um áframhaldandi markaðssetningu á íbúamarkaði og vinnu við samkeppnisgreiningu.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020
Málsnúmer 2020020650Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir 2020
Málsnúmer 2020040527Fundargerðir stjórnar Markaðstofu Norðurlands frá 5. júní og 13. júlí 2020 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl