Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 690
- Kl. 13:00 - 13:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 690
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Krókeyrarnöf 7 - umsókn um breytingar
Málsnúmer BN070562Erindi dagsett 17. nóvember 2017 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd Hjálmars Haukssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 7 við Krókeyrarnöf. Sótt er um að breyta rými á neðri hæð, þvottahúsi komið fyrir þar sem áður var virki og loka á verönd. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. ágúst 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Óðinsnes 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir skiptingu verslunarrýmis
Málsnúmer 2018070513Erindi dagsett 20. júlí 2018 þar sem Helgi Már Halldórsson fyrir hönd Smáragarðs ehf., kt. 600269-2599, sækir um byggingarleyfi til að tvískipta verslunarrými í húsi nr. 2 við Óðinsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Helga Má Halldórsson. Innkomnar nýjar teikningar 21. ágúst 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Eyrarlandsvegur 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hjólaskýli
Málsnúmer 2018070566Erindi dagsett 26. júlí 2018 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Ríkiseigna, kt. 690981-0259, sækir um byggingarleyfi fyrir hjólaskýli við hús nr. 28 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 28. ágúst 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Víðimýri 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir kvist og breytingu á gluggum
Málsnúmer 2018040124Erindi dagsett 9. apríl 2018 þar sem Jónas Vigfússon fyrir hönd Hrafnkels Reynissonar og Lilju K. Bjarnadóttur sækir um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum á húsi nr. 3 við Víðimýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas Vigfússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.