Stjórn Akureyrarstofu - 96
- Kl. 17:00 -
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 96
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helga Mjöll Oddsdóttir
- Þórarinn Stefánsson
- Guðrún Þórsdóttir
- Jóhann Jónsson
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Samstarfssamningur sveitarfélaga í Eyþingi um menningarmál 2011-2013
Málsnúmer 2011040136Lagður fram til staðfestingar samningur sveitarfélaganna sem gerður er í tengslum við samstarfssamning mennta- og menningarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins annars vegar og Eyþings hins vegar um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings kom á fundinn og kynnti samninginn og starfsemi Menningarráðs Eyþings.

Stjórn Akureyrarstofu staðfestir samning sveitarfélaganna fyrir sitt leyti. Jafnframt þakkar stjórnin Ragnheiði Jónu fyrir greinargóða kynningu á starfsemi menningarráðsins og kynningu á samningi Eyþings og ráðuneytanna. Framlag ráðuneytanna er samtals 26,6 mkr. og framlag sveitarfélaganna samtals 10,6 mkr. en þar af greiðir Akureyrarsbær 6,5 mkr.

Vorkoma stjórnar Akureyrarstofu 2011
Málsnúmer 2011040138Farið yfir undirbúning fyrir Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu sem haldin verður þann 12. maí nk. Venjan er að halda Vorkomuna á sumardaginn fyrsta, en henni var frestað að þessu sinni þar sem sumardaginn bar upp á skírdag. \nHulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir umsóknir um starfslaun og tillögur um heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs og viðurkenningar Húsverndarsjóðs.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar í menningarmálum - endurnýjun 2010
Málsnúmer 2010110047Menntamálaráðuneytið gerir það að tillögu sinni að fyrri samningur verði framlengdur um 1 ár óbreyttur í ljósi þess að ekki liggur fyrir hver framlög til nýs samnings á ári 2 og 3 geta orðið. Jafnframt að lengri samningur muni ekki breyta framlögum ársins 2011. Hins vegar verði nýjum samningi lokið fyrir 1. ágúst nk.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu ráðuneytisins fyrir sitt leyti. Stjórnin leggur hins vegar áherslu á að þegar verði látið reyna á hvort ráðuneytið taki yfir kostnað vegna skylduskila sem Amtsbókasafnið annast fyrir hönd ríkisins en Akureyrarbær tekur þátt í að greiða og að nýr 3ja ára samningur liggi fyrir eigi síðar en 1. ágúst nk. eins og endurnýjunartillagan gerir ráð fyrir.

Skipulagsbreytingar í Listagili - hugmyndavinna 2011
Málsnúmer 2011040137Farið yfir hugmyndir um breytingar í Listagilinu sem fela það m.a. í sér að Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðin í Listagili verði sameinuð.

Umræðu haldið áfram á næsta fundi.

Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2011
Málsnúmer 2011020012Guðrún Þórsdóttir fulltrúi V-lista lagði til að leitað verði formlega til ungmennaráðs Akureyrar um að taka þátt í vinnu við endurskoðun menningarstefnunnar.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillöguna og felur Þórgný Dýrfjörð framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að útfæra leiðir til þess.