Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 177
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 177
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Sigríður María Hammer
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Guðríður Friðriksdóttir
- Valþór Brynjarsson
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Boginn - beiðni um lagfæringar á tækjum og búnaði og á frjálsíþróttavelli
Málsnúmer 2010100103Lagt fram erindi frá Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA dags. 5. október 2010 er varðar beiðni um lagfæringar á tækjum og búnaði í Boganum og á frjálsíþróttavelli.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur starfsmönnum Fasteigna Akureyrarbæjar að ræða við bréfaritara.

Pálmholt - girðing við Skálagerði 5
Málsnúmer 2010090174Lagt fram erindi Guðrúnar Rósu Þorsteinsdóttur og Ragnars K. Ásmundssonar dags. 20. október 2010 þess efnis að girðingaleifar sem liggja á lóðamörkum Spónsgerðis og leikskólanna Pálmholts og Flúða verði fjarlægð þar sem hún þjóni engum tilgangi og sé hættulegur farartálmi fyrir gangandi foreldra með börn á leið í leikskólann.

Frestað.

Menningarhús - stöðuskýrslur
Málsnúmer 2009010167Farið yfir stöðuna á framkvæmdinni.
Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012
Málsnúmer 2010070100Lögð fram greinargerð Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 29. október 2010 um endurbætur á stúkunni.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að lokið verði við hönnun á mannvirkinu og útboðsgögn.

Ytri-Skjaldarvík - beiðni um leigu á einbýlishúsi
Málsnúmer 2010090021Lögð fram drög að húsaleigusamningi við Concept ehf um tveggja hæða einbýlishúsið í Skjaldarvík.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að ljúka gerð samningsins með þeim breytingum sem ákveðnar voru á fundinum.

Njáll Trausti Friðbertsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Fjárhagsáætlun 2011 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2010090169Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir árið 2011.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir árið 2011 fyrir sitt leyti og vísar henni áfram til bæjarráðs.

Verkfundargerðir FA 2010
Málsnúmer 2010010174Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram til kynningar:\n8. hönnunarfundur vegna nýs hjúkrunarheimilis dags. 14. október 2010.

Njáll Trausti Friðbertsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins óskar bókað:

Í framhaldi af bókun við 3. lið fundargerðar stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar frá 15. október sl. varðandi breytingu á byggingarstað fyrir nýtt hjúkrunarheimili úr Naustahverfi í Vestursíðu, óska ég bókað að ég er sammála þeirri bókun.