Bæjarráð - 3391
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3391
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
SS Byggir ehf - gatnagerðargjöld vegna Hálanda
Málsnúmer 2012040094Lagt fram erindi dags. 19. nóvember 2013 frá lögfræðistofunni Landslögum vegna breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 varðandi þéttbýlismörk og fleira.\nÍ upphafi þessa dagskrárliðar vakti Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi S-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfan að fjalla um þennan lið. \nMeð vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum. \nLogi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi S-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.\nInga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð felur bæjarlögmanni að svara erindinu.

Lánasjóður sveitarfélaga - dómur um erlent lán
Málsnúmer 2013110222Lagður fram til kynningar dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2492/2012 Sveitarfélagið Skagafjörður gegn Lánasjóði sveitarfélaga ohf.\nDóminn má finna á slóðinni: \nhttps://www.heradsdomstolar.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=14f1a229-edee-4227-98d3-dff51342c667\nInga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 248. fundar stjórnar Eyþings dags. 13. nóvember 2013.\nFundargerðina má finna á slóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1

Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð
Málsnúmer 2013100131Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. nóvember 2013. Fundargerðin er í 4 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) til gerðar fjárhagsáætlunar, 1. liður b) er lagður fram til kynningar í bæjarráði, 2. og 4. lið a) til framkvæmdadeildar, 3. lið til skipulagsnefndar og 4. lið b) til stjórnar Norðurorku.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017
Málsnúmer 2013050198Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.